Flokkar

Skoðaðar vörur

Vörumerki

Innanhúshönnun

Fréttabréf

Um Kríli.is

Kríli.is er rekið af Interior sf. en eigendur þess eru Margrét Thorarensen og Ívar Örn Erlingsson. Interior sf. var stofnað árið 2008 en rekstur félagsins er í raun tvískiptur. Annars vegar starfar það á sviði innanhúshönnunar og hins vegar rekur það vefverslun með barnaföt og barnavörur undir nafninu Kríli.is.

 

Á Kríli.is er að finna gott úrval af barnafötum og mun úrval af barnavörum aukast á komandi mánuðum. Fyrst og fremst bjóðum við upp á barnaföt fyrir börn á aldrinum 0-24 mánaða en auk þess er eitthvað af vörum í boði fyrir börn upp að 5 ára aldri. Á næstu mánuðum munum við þó auka við vöruúrval okkar og þá sérstaklega í eldri aldursflokkunum. Markmið okkar er að bjóða upp á stóran og góðan lager af vörum fyrir öll börn á aldrinum 0-5 ára.

 

Stefna Kríli.is er að bjóða upp á góðar og vandaðar vörur á hagstæðu verði í þægilegu vefverslunarumhverfi. Þannig getur þú verslað þegar þér hentar og fengið vöruna senda heim að dyrum. Við sendum vörur um allt land og viljum þannig veita fólki á landsbyggðinni tækifæri til þess að versla vandaðar vörur á góðu verði. Að sjálfsögðu þjónustum við höfuðborgarsvæðið með sama hætti en einnig geta viðskiptavinir nálgast vörurnar til okkar í Reykjavík.

 

Kríli.is er til húsa í Furugerði 19, 108 Reykjavík.

 

Við leggjum mikla áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu og erum alltaf tilbúin að svara spurningum viðskiptavina. Endilega beinið fyrirspurnum á tölvupóstfangið krili@krili.is og munum við svara við fyrsta tækifæri. Einig er hægt að hringja í síma 776-2288.

 

Á Facebook síðu okkar, www.facebook.com/krili.is, er að finna alls kyns upplýsingar. Þar setjum við inn upplýsingar um væntanlegar vörur, tilboð og fleira skemmtilegt svo við mælum með því að þið fylgist vel með. Við viljum einnig benda fólki á að skrá sig á póstlistann okkar. Þeir sem eru skráðir á póstlistann munu fá ýmis fríðindi svo sem afslætti og ýmis konar tilboð.




Karfa  

Engar vörur

Sendingargjald 0 kr.
VSK 0 kr.
Samtals 0 kr.

Verð eru með vsk.

Karfa Ganga frá greiðslu