Skilmálar
Almennt
Kríli.is tekur við pöntun þegar greiðsla fyrir hana hefur borist. Um leið og full greiðsla fyrir vöru berst er kominn á samningur milli kaupanda og Kríli.is. Að svo búnu er pöntunin tekin saman og send en hægt er að fylgjast með ferlinu inn á „Mitt svæði“. Það getur komið upp að vara sé uppseld en ef svo er verður þú látin/n vita með tölvupósti og þér endurgreitt að fullu.
Afhending
Hægt er að velja um það að fá pöntun senda eða sækja hana til okkar.
Þeir viðskiptavinir sem velja að fá pöntunina senda greiða fyrir það 450 krónur í sendingakostnað. Allar pantanir eru sendar með Íslandspósti en pantanir verða að jafnaði póstlagðar innan tveggja virkra daga frá því að greiðsla berst.
Einnig verður hægt að sækja vöruna til okkar í Furugerði 19, 108 Reykjavík eftir samkomulagi.
Greiðsla
Viðskiptavinir geta valið um að greiða með greiðslukorti eða með millifærslu. Við tökum við öllum helstu greiðslukortum í gegnum örugga greiðslumiðlun Dalpay. Sé millifærsla valin þarf hún að fara fram innan tveggja sólarhringa frá því að pöntunin var gerð til þess að pöntun verði samþykkt.
Millifæra skal inn á reikning 0162-26-003583, kennitala 541008-1360 en eigandi reikningsins er Interior.sf.
Kjósi viðskiptavinur að sækja vöruna til okkar getur hann þó að sjálfsögðu greitt fyrir vöruna með peningum.
Skilaréttur
Við hjá Kríli.is viljum að viðskiptavinir okkar séu ánægðir með vörur okkar en ef ekki, bjóðum við upp á 14 daga skilafrest. Til þess að vara fáist endurgreidd þarf að skila henni ónotaðri og í upprunalegum umbúðum og ásigkomulagi og með greiðslukvittun. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt eftir að varan er móttekin. Endursending vara er á ábyrgð og kostnað kaupanda, nema viðskiptavinur hafi fengið ranga eða skemmda vöru afhenta. Einnig getur viðskiptavinur komið með vöruna til okkar samkvæmt samkomulagi. Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003.
Trúnaður
Kríli.is heitir kaupenda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tenglsum við viðskiptin. Upplýsingarnar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum og verða þær varðveittar á öruggan hátt.
Verð, skattar og gjöld
Öll verð eru með 25,5% virðisaukaskatti. Vinsamlegast athugaðu að verð geta breyst án fyrirvara og að öll verð eru birt með fyrirvara um myndabrengl eða innsláttarvillur.
Skilmálar þessir gilda frá 1. desember 2011.